Í starfskjarastefnu er að finna grundvallaratriði varðandi starfskjör, s.s. laun og aðrar greiðslur, til stjórnenda og stjórnarmanna og stefnu
félags varðandi samninga við stjórnendur og stjórnarmenn. Jafnframt skal koma fram í starfskjarastefnu hvort og þá við hvaða
aðstæður og innan hvaða ramma heimilt sé að greiða eða umbuna stjórnendum og stjórnarmönnum til viðbótar grunnlaunum, m.a. í
formi greiðslna sem tengjast verðmæti hlutabréfa félagsins og starfslokasamninga.
Stjórn Saga Capital samþykkir starfskjarastefnu félagsins á grundvelli 79. gr. a í lögum um hlutafélög nr. 2/1995. Starfskjarastefnan er því næst lögð fyrir aðalfund félagsins til samþykktar.
Hér fyrir neðan má nálgast Starfskjarastefnu Saga Capital eins og hún var samþykkt á aðalfundi félagsins 28. maí 2010.





