Saga Capital gerir sér grein fyrir því að fyrirtæki hafa ekki aðeins hagfræðileg áhrif á nærumhverfi sitt, heldur einnig mikil landfræðileg og félagsleg áhrif. Því er mikilvægt að fyrirtækið hafi ætíð samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi bæði í innri og ytri athöfnum og gjörðum sínum, það er jafnt í samskiptum fyrirtækisins við viðskiptavini, starfsmenn, þjónustuaðila og samfélagið í heild.
Saga Capital hefur frá upphafi stutt dyggilega við samfélagsleg málefni í umhverfi sínu og hefur veitt yfir 100 styrki til margvíslegra verkefna, stórra og smárra. Meðal annars hefur fyrirtækið mótað þá stefnu að halda jólaútgjöldum í algjöru lágmarki, en veita verðugu málefni veglegan styrk í staðinn. Starfsmenn fyrirtækisins hafa nú tvö ár í röð valið að láta jólastyrki fyrirækisins renna til Mæðrastyrksnefndar. Meðal annarra verkefna, sem okkur eru afar kær má nefna ýmis konar menntunartengda styrki, m.a. stuðning við unga frumkvöðla og menningar- og tónlistarlíf.
Saga Capital telur að samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja eigi þó ekki aðeins að birtast í styrkveitingum þeirra heldur geti þau haft jákvæð samfélagsleg áhrif á margvíslegan hátt og gengið á undan með góðu fordæmi. Í ljósi þess, sem á undan er gengið í íslensku viðskiptalífi telur Saga Capital afar mikilvægt að fyrirtækið standi vörð um trúverðugleika sinn og óhlutdrægni og vinni hér eftir sem hingað til af heiðarleika á opinn og gegnsæjan hátt.





