Saga Capital telur mjög mikilvægt að regluvarsla félagsins sé af hæstu gæðakröfum á hverjum tíma. Þar á meðal leggur
félagið áherslu á þekkingu og sjálfstæði regluvarðar félagsins í því sjónarmiði að stuðla að
heilbrigðum og trúverðugum rekstri og þjónustu Saga Capital. Regluvörður Saga Capital er tilnefndur af stjórn félagsins og er undir eftirliti
innri endurskoðanda félagsins og skilar reglulega skýrslum til stjórnar félagsins um störf sín.
Regluvörður hefur eftirlit með að starfsemi félagsins sé í samræmi við reglur og gildandi lög á hverjum tíma. Félagið hefur sett sér eftirfarandi reglur þar að lútandi:
Regluvörður Saga Captial er Vilhjálmur Bergs hdl., vilhjalmur@sagacapital.is.
Regluvörður hefur eftirlit með að starfsemi félagsins sé í samræmi við reglur og gildandi lög á hverjum tíma. Félagið hefur sett sér eftirfarandi reglur þar að lútandi:
Verklagsreglur um eigin viðskipti
Hafa það að markmiði að stuðla að óhlutdrægni gagnvart og jafnræði milli viðskiptavina í starfsemi
félagsins, koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, tryggja óhæði starfsmanna og trúnað og trúverðugleika vegna viðskipta Saga Capital
fyrir eigin reikning.
Starfsreglur stjórnar
Er ætlað að tryggja jafnræði við meðferð mála fyrir stjórn, vandaða og óháða
málsmeðferð og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra í starfsemi félagsins. Í því skyni er starfsreglum stjórnar félagsins
ætlað að styrkja umgjörð um viðskipti stjórnarmanna og félaga þeim tengdum við Saga Capital og aðgang stjórnarmanna að
upplýsingum um viðskiptamenn.
Reglur um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Hafa það markmið að hindra að rekstur og starfsemi félagsins verði notuð til að þvætta fjármuni eða til
að fjármagna hryðjuverkastarfsemi og með reglunum leitast Saga Capital við að uppfylla í hvívetna ítrustu kröfur sem gerðar eru til
fjármálafyrirtækja á innlendum og alþjóðlegum vettvangi um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Stefna Saga Capital um hagsmunaárekstra
Er ætlað er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, annars vegar á milli félagsins og viðskiptavina þess og hins vegar
á milli viðskiptavina félagsins innbyrðis, einkum á sviði ráðgjafar um verðbréfaviðskipti.
Regluvörður hefur eftirlit með að framangreindum reglum sé fylgt í starfsemi félagsins og hefur forgöngu um túlkun á reglunum. Hann sér
einnig um kynningu og endurmenntun gagnvart starfsmönnum og reglulegri endurskoðun reglnanna.Reglur Saga Capital um bestu framkvæmd viðskipta
Er ætlað að tryggja að viðskiptavinir Saga Capital hljóti bestu mögulegu
niðurstöðu við framkvæmd viðskiptafyrirmæla þeirra og tilgreina þá markaði sem Saga Capital framkvæmir viðskiptafyrirmæli
viðskiptavina sinna á, enda óski viðskiptavinir ekki eftir sérstakri framkvæmd viðskiptafyrirmæla. Í reglunum eru jafnframt settar fram
þær forsendur sem starfsmenn Saga Capital byggja á við framkvæmd viðskiptafyrirmæla. Reglurnar er að finna sem viðauka 3 við Almenna Skilmála Saga Capital.
Regluvörður Saga Captial er Vilhjálmur Bergs hdl., vilhjalmur@sagacapital.is.





