Uppgjörsfyrirtækið T Plús, sem er að hluta í eigu Saga Capital, sér um alla umsýslu, frágang og uppgjör á
verðbréfaviðskiptum fyrir félagið.
T Plús sérhæfir sig í vörslu- og uppgjörsþjónustu verðbréfa og býður upp á fjölmarga þjónustuþætti, allt frá varðveislu verðbréfa fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fagfjárfesta upp í daglegan rekstur verðbréfakerfa fyrir fyrirtæki með stærri verðbréfaumsvif svo sem banka og verðbréfafyrirtæki. Einnig eru í boði sérsniðnar lausnir fyrir viðskiptavini og daglegur rekstur verðbréfakerfa.

Meðal þjónustuþátta má telja:
- Varðveisla eigna
- Móttaka og afhending eigna
- Uppgjör viðskipta
- Daglegar viðskiptanótur
- Regluleg viðskiptayfirlit
- Veðsetningar
- Afstemmingar eigna
- Uppgjör og frágangur veðlánasamninga
- Afgreiðsla og frágangur fyrirtækjaaðgerða
- Innheimta skuldabréfa og víxla
- Uppgjör og frágangur dánarbúa
- Skráningar stofnupplýsinga
- Gengisskráningar verðbréfaflokka
- MiFID skráningar
- Reglulegar prófanir á tölvukerfum
- Aðgangsstýringar að verðbréfakerfum