Mannauður: Starfsmenn Saga Capital eru lykillinn að velgengni, vexti og arðsemi

Saga Capital hefur það að markmiði að ráða til sín yfirburðafólk með fjölbreyttan bakgrunn, þekkingu og reynslu, fólk sem er traust, sýnir frumkvæði og

Mannauður

Saga Capital hefur það að markmiði að ráða til sín yfirburðafólk með fjölbreyttan bakgrunn, þekkingu og reynslu, fólk sem er traust, sýnir frumkvæði og nær árangri. Fyrirtækið kappkostar að hlúa vel að starfsfólki sínu og telur mikilvægt að skapa skemmtilegan vinnustað með góðu starfsumhverfi og stuðla að markvissri starfsþróun og símenntun starfsmanna sinna.

Sameiginlegt markmið starfsmanna Saga Capital er að efla fyrirtækið í allri samkeppni, sýna árangur í því sem þeir taka sér fyrir hendur og hafa gaman af því sem þeir eru að gera.



Allir sem hafa áhuga á að starfa hjá fyrirtækinu eru hvattir til að sækja um. Bæði er hægt að senda inn almenna umsókn og sækja um auglýst starf. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda póst á starf@sagacapital.is.
Hersir Sigurgeirsson, forstjóri, er jafnframt starfsmannastjóri Saga Capital.

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf