Saga Capital starfar á sex sviðum. Tekjusvið fyrirtækisins eru fjögur: Eignaumsýsla og Ráðgjöf, Fjárstýring,
Fyrirtækjaráðgjöf og Markaðsviðskipti. Stoðsvið fyrirtækisins eru tvö: Áhættustýring og rekstur og Lögfræðisvið
og regluvarsla.
Áhættustýring og rekstur
Áhættustýring og rekstur sér um áhættustýringu, rekstur tölvukerfa og bókhald og uppgjör félagsins. Í áhættustýringu felst að greina, mæla, fylgjast með og stýra allri áhættu í starfsemi félagsins og vinnur sviðið náið með öðrum sviðum að því markmiði. Sviðið sér um rekstur allra tölvukerfa félagsins og samskipti við þjónustuaðila. Þá annast sviðið uppgjör allra sviða félagsins sem og árs- og ársfjórðungsuppgjör félagsins og áætlanagerð. Sviðið sinnir einnig reglulegri skýrslugjöf til stjórnar og forstjóra, ásamt skýrsluskilum til eftirlitsaðila og gætir þess að rekstur, bókhald og eftirlit sé í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).
Eignaumsýsla og ráðgjöf
Sviðið Eignaumsýsla og ráðgjöf býður fyrirtækjum og fagfjárfestum upp á samningsbundna umsýslu og úrvinnslu óhefðbundinna eða ómarkaðshæfra eigna (distressed assets) svo sem skuldaskilaeigna, krafna, eignahluta, fasteigna eða annarra eigna sem krefjast sérhæfðrar meðferðar. Helstu viðskiptavinir eru eignarhaldsfélög, lífeyrissjóðir, tryggingafélög og fjármálastofnanir sem hafa eignast slíkar eignir og vilja útvista utanumhaldi og úrvinnslu.
Fjárstýring
Fjárstýring Saga Capital ber ábyrgð á efnahag félagsins, bæði skulda- og eignahlið hans. Starfsemi Fjárstýringar skiptist upp í þrjár undirdeildir sem annast ólíka þætti efnahagsreikningsins: Skuldastýringu,Eigin viðskipti og Útlánadeild. Skuldastýring Saga Capital annast skuldahlið efnahagsreikningsins með fjármögnun félagsins á innlendum og erlendum mörkuðum. Þar með eru taldar lántökur á íslenskum peninga- og skuldabréfamarkaði, alþjóðlegum peninga- og skuldabréfamarkaði og alþjóðlegum sambankalánamarkaði. Að auki annast Skuldastýring hefðbundna lausafjárstýringu félagsins. Eigin viðskipti annast stýringu á eignahlið félagsins með þátttöku á innlendum og erlendum verðbréfamörkuðum. Fjárfestingar félagsins eru ýmist í hlutabréfum, skuldabréfum eða afleiðum. Útlánadeild Saga Capital annast umsýslu á útlánum til fyrirtækja og stofnanafjárfesta.
Fyrirtækjaráðgjöf
Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital veitir fyrirtækjum, eignarhaldsfélögum og öðrum fagfjárfestum ráðgjöf um kaup, sölu, samruna og yfirtöku fyrirtækja og rekstrareininga. Meðal þjónustuþátta sem Saga Capital býður í tengslum við sölu og kaup á félögum og fyrirtækjum má nefna: Rágjöf varðandi útboð og skráningu verðbréfa, umsjón með áreiðanleikakönnunum, samruni og yfirtökur, aðstoð í tengslum við breytingar á eignarhaldi og þátttaka í samningaviðræðum og samningagerð.
Lögfræðisvið og regluvarsla
Lögfræðisvið veitir yfirstjórn Saga Capital, sem og tekju- og stoðsviðum félagsins, lögfræðilega ráðgjöf og
þjónustu. Lögfræðisvið sér um að starfsemi félagsins sé hverju sinni í samræmi við gildandi lög. Sviðið annast
einnig samstarf við yfirvöld í þeim tilgangi að koma í veg fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Lögfræðisvið
gætir hagsmuna félagsins fyrir dómstólum og gagnvart yfirvöldum. Regluvarsla félagsins heyrir undir Lögfræðisviðið og starfsmaður
Lögfræðisviðs er jafnframt regluvörður.
Markaðsviðskipti
Markaðsviðskipti Saga Capital annast ráðgjöf vegna frumútgáfu skuldabréfa og miðlun verðbréfa fyrir fyrirtæki, fjárfestingarsjóði, verðbréfasjóði, lífeyrissjóði og aðra fagfjárfesta.





