Starfsemi

Saga Capital hf. var stofnað síðla hausts árið 2006, af nokkrum fyrrverandi starfsmönnum íslensku viðskiptabankanna og hét þá Saga Capital

Starfsemi

Saga Capital hf. var stofnað síðla hausts árið 2006, af nokkrum fyrrverandi starfsmönnum íslensku viðskiptabankanna og hét þá Saga Capital Fjárfestingarbanki. Bankinn lauk við lokað hlutafjárútboð á vormánuðum 2007 og voru hluthafar þá um 60 talsins.

Í apríllok 2007 gerðist Saga Capital aðili að Kauphöll Íslands, Nasdaq OMX, með auðkennið SGA. Regluleg starfsemi bankans hófst í sumarbyrjun 2007 þegar Fjármálaeftirlitið veitti Saga Capital starfsleyfi sem fjárfestingarbanki. Haldið var formlega upp á opnun bankans í ágúst sama ár.

Skrifstofur Saga Capital voru í upphafi í tveimur fallegum, gömlum húsum með mikla sögu. Höfuðstöðvar bankans voru í meira en 100 ára gömlu húsi, Gamla barnaskólanum, að Hafnarstræti 54 á Akureyri en þjónustusvið bankans, svo sem Fyrirtækjaráðgjöf og Markaðsviðskipti, voru staðsett í gamla kúabúinu að Þóroddsstöðum, Skógarhlíð 22 í Reykjavík.

Síðla árs 2010 fluttu starfsmenn í Reykjavík sig um set og settust að á 14. hæðinni í útsýnisturninum við Höfðatorg. Á sama tíma var nafni bankans breytt úr Saga Capital Fjárfestingarbanka í Saga Capital. Þessi einföldun var gerð til að undirstrika sérhæfingu bankans og sérstöðu sem banki atvinnulífsins og eini fjárfestingarbanki landsins.

Í lok árs 2010 stofnaði Saga Capital nýtt fyrirtæki, T Plús ásamt Íslenskum verðbréfum og Stapa lífeyrissjóði. T Plús er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í vörslu- og uppgjörsþjónustu verðbréfa.

Síðla árs 2011 afturkallaði Fjármálaeftirlitið starfsleyfi bankans sem fjárfestingarbanki og var nafni félagsins í kjölfarið aftur breytt í Saga Capital.

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf