Tveir nýir stjórnarmenn hjá Saga Capital

Tveir nýir stjórnarmenn hjá Saga Capital Tveir nýir stjórnarmenn, þeir  Gunnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Sundagarða og Jón Ármann

Tveir nýir stjórnarmenn hjá Saga Capital

Tveir nýir stjórnarmenn, þeir  Gunnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Sundagarða og Jón Ármann Guðjónsson, lögmaður, tóku sæti í stjórn Saga Capital Fjárfestingarbanka í kjölfar aðalfundar móðurfélags bankans, Saga Eignarhaldsfélags sem fram fór síðastliðinn föstudag.

Þrír stjórnarmenn sitja áfram, þeir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA og stjórnarformaður Saga Capital, Gunnar Þór Guðmannsson, framkvæmdastjóri Vogavers og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir sem starfar við eigin fjárfestingar.

Aðalfundurinn samþykkti breytingar á Starfskjarastefnu Saga Capital sem meðal annars fólu í sér að tekin voru út ákvæði um heimild til að umbuna starfsmönnum með svokölluðum kaupréttum að hlutabréfum í bankanum. Það kaupréttakerfi sem sett var upp í árslok 2007 var fellt niður á síðasta ári en enginn starfsmaður nýtti sér kaupréttinn. Þá var einnig bætt við ákvæði inn í starfskjarastefnuna um takmarkanir á starfslokagreiðslum. Að öðru leyti var Starfskjarastefnan aðlöguð Stjórnarháttum fyrirtækja, 4. útgáfu.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, fór yfir starfsemi bankans á síðasta ári og helstu niðurstöður úr uppgjöri hans. Hóflegur hagnaður upp á tæplega 18 milljónir króna varð af grunnrekstri bankans og þóknanatekjur fimmfölduðust frá fyrra ári og voru tæplega 400 milljónir. Afkoma bankans einkenndist þó öðru fremur af varúðarframlögum í afskriftarreikning sem námu rúmum milljarði í fyrra auk einskiptiskostnaðar sem rekja má til endurskipulagningar Saga Capital síðasta vetur. Eiginfjárgrunnur bankans er 3,9 milljarðar og eiginfjárhlutfallið 36% sem er töluvert hærra en það almenna 16% lágmark sem FME hefur sett viðskiptabönkum í kjölfar bankahrunsins.

Þorvaldur Lúðvík rifjaði upp að bankinn hefði staðið vel þegar stóru viðskiptabankarnir hrundu og endurskipulagningin í fyrra hefði miðað að því að einangra bankastarfsemina og breyta rekstraráherslum þannig að meiri áhersla væri nú lögð á tekjusköpun sem ekki byggist á að nýta efnahagsreikning bankans. Hann benti á að Saga Capital væri nú eini sérhæfði fjárfestingarbanki landsins og áherslur bankans myndu liggja á því sviði, þ.e. að verða leiðandi fjárfestingarbanki á Íslandi á sviði fyrirtækjaráðgjafar, markaðsviðskipta og eignaumsýslu.

Halldór Jóhannsson, stjórnarformaður Saga Capital sagði að síðasta ár hefði öðru fremur einkennst af töfum og óvissu. Halldór benti á að aðrir fjárfestingarbankar hafi í kjölfar bankahrunsins breytt áherslum sínum og útvíkkað starfsemina en stjórn Saga Capital hefði hins vegar ákveðið  að halda sig við sitt upphaflega markmið um að Saga Capital starfaði eingöngu sem fjárfestingarbanki. Ástæðurnar væru einkum tvær. Annars vegar væri það mat stjórnar að mikil eftirspurn verði eftir sérhæfðum og óháðum fjárfestingarbanka á næstunni enda þörf atvinnulífsins greinileg. Hins vegar telur stjórn að erfitt verði til langframa  að fjármagna fjárfestingarbankastarfsemi með kvikum, óbundnum innlánum og því verði aðrar fjármögnunarleiðir nýttar.

Halldór sagði að það væri mikil áskorun að tryggja viðunandi afkomu um leið og bankinn væri byggður upp með nýjum áherslum í afar brothættu og krefjandi umhverfi. Stjórn og starfsmenn Saga Capital hefðu hins vegar lært mikið á undangengnum misserum og ætluðu sér hlutverk í því framtíðarverkefni að endurreisa íslenskan fjármálamarkað og endurskipuleggja hagkerfið.



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf