Vakin er athygli á því að hluthöfum gefst kostur á að taka þátt í fundinum að Skógarhlíð 22 í Reykjavík, þar
sem fundinum verður sjónvarpað beint.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við innganginn við upphaf fundarins eða frá kl. 15:00. Vinsamlegast athugið að gera þarf viðhlítandi grein fyrir umboði og/eða prókúru umboðsmanns eða forsvarsmanns hluthafa, mæti hluthafi ekki í eigin nafni.
Umboð fyrir einstakling
Umboð fyrir félag
Dagskrá og tillögur aðalfundarins
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi Hildu á árinu 2009
2. Endurskoðaður reikningur Hildu fyrir árið 2009 lagður fram til staðfestingar
Stjórn Hildu leggur til að framlagður endurskoðaður reikningur félagsins fyrir árið 2009 verði samþykktur.
3. Ákvörðun um meðferð taps á árinu 2009
Stjórn Hildu leggur til að ekki verði greiddur arður til hluthafa fyrir starfsárið 2009 og að tap verði fært til lækkunar á eigin fé.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum Hildu
Stjórn félagsins leggur til eftirfarandi breytingu á samþykktum félagsins, um heimild stjórnar til hækkunar hlutafjár félagsins:
Núverandi ákvæði 4. gr. samþykkta félagsins falli niður og ný 4. gr. hljóði svo:
Hlutafé félagsins er kr. 95.553.323. Hver hlutur er að fjárhæð kr. 1,- eða margfeldi þeirrar fjárhæðar eins og hlutafjáreign hluthafa segir til um á hverjum tíma.
Stjórn félagsins hefur heimild til þess að hækka hlutafé í allt að kr. 119.500.000,- með áskrift nýrra hluta. Stjórn skal ákvarða útboðsgengi og greiðslukjör hinna nýju hluta og í hvaða áföngum heimildin verður nýtt. Hluthafar eiga forgangsrétt til að skrá sig fyrir nýjum hlutum í félaginu í réttu hlutfalli við hlutafjáreign sína. Stjórn getur sett nánari reglur um sölu hlutanna. Heimild þessi gildir til aðalfundar 2011.
5. Kosning stjórnar
Eftirfarandi gefa kost á sér í stjórn og varastjórn Hildu hf.:
Stjórn:
Halldór Jóhannsson, 040872-4189
Gunnar Þór Gíslason, 181165-3759
Gunnar Þór Guðmannsson, 150256-3649
Jón Ármann Guðjónsson, 060468-3039
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, 250277-5209
Varastjórn:
Bjarni Hafþór Helgason, 220857-3799
Eggert Árni Gíslason, 240761-2119
Guðmundur Örn Þórðarson, 100372-5259
Karl Friðriksson, 101170-4039
Stefán Héðinn Gunnlaugsson, 170345-2909
6. Kosning endurskoðunarfélags
Stjórn leggur til að KPMG hf. verði endurkjörið sem endurskoðunarfélag Hildu fyrir starfsárið 2010.
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og endurskoðunarfélags
Stjórn Hildu leggur til að engin stjórnarlaun verði greidd vegna yfirstandandi starfsárs.
Stjórn félagsins leggur til að þóknun til endurskoðenda félagsins verði greidd samkvæmt framlögðum reikningi.
8. Önnur mál





