Teledyne kaupir Hafmynd

Teledyne kaupir Hafmynd Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital hefur lokið við að selja íslenska nýsköpunarfyrirtækið Hafmynd sem þróar og framleiðir

Teledyne kaupir Hafmynd

Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital hefur lokið við að selja íslenska nýsköpunarfyrirtækið Hafmynd sem þróar og framleiðir dvergkafbáta. Kaupandi er bandaríska hátæknifyrirtækið Teledyne Technologies. Seljendur Hafmyndar eru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Mallard, fyrirtækis í eigu Össurar Kristinssonar, stoðtækjafræðings, auk smærri hluthafa.

18 manns starfa hjá Hafmynd og engar breytingar eru fyrirhugaðar á starfsmannahaldi í tengslum við eigendaskiptin. Teledyne stefnir að því að hönnun og þróun dvergkafbátsins verði áfram á Íslandi og er jafnframt að skoða það að stofna sérstaka þjónustudeild hérlendis með prófunaraðstöðu fyrir aðra tengda framleiðslu Teledyne.

,,Þetta er bein erlend fjárfesting eins og hún gerist best og gott dæmi um það hvernig íslensk sprotafyrirtæki geta vaxið og dafnað frá því að vera lítil hugmynd og upp í að vera arðbær félög og vænlegur fjárfestingarkostur fyrir alþjóðleg fyrirtæki,“ segir Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins, sem segir mjög mikilvægt að starfsemi Hafmyndar haldi áfram hérlendis.

Teledyne er eitt af stærstu hátæknifyrirtækjum Bandaríkjanna og starfar meðal annars að hönnun,  þróun og framleiðslu á sviði rafeindatækni, mælitækni og fjarskipta . Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Bandaríkjunum en söluskrifstofur og dótturfélög starfa um allan heim. Teledyne hefur að undanförnu fært sig enn frekar en áður inn á svið sjávartækninnar og eru kaupin á Hafmynd í beinu framhaldi af því.

Gavia, dvergkafbátarnir sem Hafmynd framleiðir eru ómannaðir, fyrirferðarlitlir og léttir og útbúnir myndavélum og margs konar mælitækjum svo sem sónar, salt- og dýptarmælum. Þeir henta vel í ýmis konar rannsóknarvinnu og eftirlit í sjó og á vötnum og hafa verið notaðir til umhverfisrannsókna, sjómælinga, til leitar og fornleifarannsókna á hafsbotni og við öryggiseftirlit til dæmis í höfnum og við olíuborpalla.

Össur Kristinsson segir að kaup Teledyne á Hafmynd séu gríðarleg viðurkenning á íslensku hugviti. ,,Hafmynd er íslenskt þekkingarfyrirtæki sem byggir á allra nýjustu rannsóknum og tækni á sviði vélbúnaðar, hugbúnaðar og fjarskipta. Þessi sala er viðurkenning á því að starfsmenn Hafmyndar eru fremstir á sínu sviði í heiminum öllum,“ segir Össur.

Hafmynd var stofnað árið 1999 af Hjalta Harðarsyni, verkfræðingi og Sjávarútvegsstofnun Háskóla Íslands en forsögu fyrirtækisins má rekja allt aftur til Raunvísindastofnunar HÍ í lok áttunda og byrjun níunda áratugarins. Hafmynd hlaut nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs árið 2007 og tilnefndir til Vaxtasprota Samtaka Atvinnulífsins árið 2010.



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf