Fjármálaeftirlitið hefur veitt fyrirtækinu T Plús, sem meðal annars er í eigu Saga Fjárfestingarbanka, starfsleyfi sem
verðbréfafyrirtæki. T Plús er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í vörslu- og uppgjörsþjónustu
verðbréfa.
T Plús var stofnað í október 2009 og voru stofnendur fyrirtækisins þrír; Íslensk verðbréf, Saga Fjárfestingarbanki og Stapi lífeyrissjóður, sem allir munu nýta sér þjónustu T Plús.
Starfsfólk T Plús hefur margra ára starfsreynslu á sviði bakvinnslu, uppgjörsvinnu og vörslu verðbréfa. T Plús hefur markað
sér þá stefnu að veita bestu þjónustu sem völ er á fyrir sanngjarnt verð. Fyrirtækið leggur gríðarmikla áherslu
á að vernda hagsmuni viðskiptavina sinna og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra á milli viðskiptavina fyrirtækisins innbyrðis og eins á milli
fyrirtækisins sjálfs og viðskiptavina þess.
T Plús býður upp á fjölmarga þjónustuþætti, allt frá varðveislu verðbréfa fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fagfjárfesta upp í daglegan rekstur verðbréfakerfa fyrir fyrirtæki með stærri verðbréfaumsvif svo sem banka og verðbréfafyrirtæki.
Meðal þjónustuþátta má telja:
· Varðveisla eigna
· Móttaka og afhending eigna
· Uppgjör viðskipta
· Daglegar viðskiptanótur
· Regluleg viðskiptayfirlit
· Veðsetningar
· Afstemmingar eigna
· Uppgjör og frágangur veðlánasamninga
· Afgreiðsla og frágangur fyrirtækjaaðgerða
· Innheimta skuldabréfa og víxla
· Uppgjör og frágangur dánarbúa
· Skráningar stofnupplýsinga
· Gengisskráningar verðbréfaflokka
· MiFID skráningar
· Reglulegar prófanir á tölvukerfum
· Aðgangsstýringar að verðbréfakerfum
Einnig eru í boði sérsniðnar lausnir fyrir viðskiptavini og daglegur rekstur verðbréfakerfa.





