fimmtudagur 10.júní 2010
Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur lokið við að selja skuldabréf Mosfellsbæjar. Skuldabréfin voru seld í lokuðu
skuldabréfaútboði til lífeyrissjóða og nam útgáfufjárhæðin 600 milljónum króna. Um er að ræða 10
ára afborgunarbréf í opnum skuldabréfaflokki MOS 09 1 sem eftir þessa viðbót nemur 1.600 milljónum króna.
Með skuldabréfasölunni er Mosfellsbær að endurfjármagna lán bæjarins ásamt því að ljúka nokkrum uppbyggingaverkefnum og
stuðla þar með að áframhaldandi framþróun í sveitarfélaginu.
Saga Capital Fjárfestingarbanki annaðist bæði umsjón og sölu bréfanna og mun skrá þau í Kauphöll Íslands, NASDAQ OMX á
Íslandi. Bankinn hefur að undanförnu verið leiðandi á markaði í sölu skuldabréfa fyrir íslensk sveitarfélög og aðra
opinbera og hálfopinbera aðila. Í fyrra gaf Saga Capital út skuldabréf og seldi fyrir samtals 16 milljarða íslenskra króna meðal annars fyrir
Kópavogsbæ, Árborg, Landsnet, Eignarhaldsfélagið Farice og Byggðastofnun.
Saga Capital er eini sérhæfði fjárfestingarbanki landsins sem veitir alla almenna fjárfestingarbankaþjónustu svo sem fyrirtækjaráðgjöf, verðbréfamiðlun, eignaumsýslu, skuldabréfaútboð og fjárfestingaráðgjöf til fyrirtækja, stofnana og annarra fagfjárfesta.





