Saga fær heimild til nauðasamningsumleitana

Saga fær heimild til nauðasamningsumleitana Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í dag var Saga Fjárfestingarbanka veitt heimild til

Saga fær heimild til nauðasamningsumleitana

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í dag var Saga Fjárfestingarbanka veitt heimild til nauðasamningsumleitana. Samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi að nauðasamningi fá kröfuhafar kröfur sínar greiddar að fullu, en samningskröfuhafar með kröfur hærri en 11 milljónir króna veita gjaldfrest á sínum kröfum í allt að níu mánuði og fá 1% af kröfum sínum greiddar með nýju hlutafé í bankanum.

Skipaður hefur verið umsjónarmaður með framkvæmd nauðasamningsumleitana, sem mun á næstu dögum birta innköllun á kröfum.  Kröfuhafar verða að því loknu boðaðir til atkvæðagreiðslu um nauðasamninginn. Gert er ráð fyrir að nauðasamningsumleitunum verði lokið fyrir miðjan desember nk.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að núverandi hlutafé bankans verði fært niður að fullu og nýtt hlutafé gefið út. Boðað verður til hluthafafundar á næstu dögum þar sem frumvarpið verður kynnt frekar og tillögur að lækkun og hækkun hlutafjár lagðar fram.

 

 



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf