Nýjar höfuðstöðvar

Nýjar höfuðstöðvar Saga Fjárfestingarbanki mun flytja höfuðstöðvar sínar frá Hafnarstræti 53 á Akureyri að Höfðatorgi í Reykjavík frá og með 1. júlí nk.

Nýjar höfuðstöðvar

Saga Fjárfestingarbanki mun flytja höfuðstöðvar sínar frá Hafnarstræti 53 á Akureyri að Höfðatorgi í Reykjavík frá og með 1. júlí nk. Höfuðstöðvar bankans hafa frá upphafi verið á Akureyri og stærstur hluti starfseminnar farið fram þar, en undanfarið ár hefur sífellt aukinn hluti starfseminnar færst til Reykjavíkur. Er nú svo komið að fleiri starfsmenn bankans hafa aðsetur í Reykjavík en á Akureyri, þannig að flutningur höfuðstöðvanna er eðlilegt skref og í takt við þá þróun. Starfsstöð bankans á Akureyri verður lokað á haustmánuðum.

Bankinn mun áfram halda góðum tengslum við Akureyri og nærsveitir og vinna með fjölmörgum viðskiptavinum bankans sem staðsettir eru á Norðurlandi, ásamt því að styðja við áframhaldandi uppgang verðbréfafyrirtækisins T Plús á Akureyri, sem bankinn stofnaðir ásamt Íslenskum verðbréfum og Stapa lífeyrissjóði.



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf