miðvikudagur 10.ágúst 2011
Þrír nýir stjórnarmenn, þeir Ágúst Egilsson, Áslaug Gunnlaugsdóttir, héraðsdómslögmaður, og Brynhildur Kristín Ólafsdóttir tóku sæti í stjórn Saga Fjárfestingarbanka í kjölfar framhaldsaðalfundar bankans sem fór fram 28. júlí sl.
Tveir stjórnarmenn sitja áfram, þeir Gunnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Sundagarða og stjórnarformaður Saga Fjárfestingarbanka, og Eggert Árni Gíslason, framkvæmdastjóri Mötu.
Í varastjórn voru kjörnir Geir Gíslason, Gunnar Leó Gunnarsson, Halldór Páll Gíslason, Kristinn Helgi Guðjónsson og Stefán Héðinn Gunnlaugsson.





