föstudagur 01.október 2010
Samkvæmt yfirliti frá Kauphöll Íslands er Saga Capital með mestu hlutdeild á aðalmarkaði Kauphallarinnar það sem af er árinu eða 42,1%. Heildarviðskipti með hlutabréf í septembermánuði námu 2.326 milljónum kr. en til samanburðar var veltan með hlutabréf í ágústmánuði 935 milljónir. Úrvalsvísitalan (OMX16) lækkaði um 1,77% á milli mánaða og stendur nú í 920,1 stigi.
September er veltumesti mánuður ársins hvað varðar skuldabréf, enda voru viðskipti með skuldabréf í september nálægt því tvöfalt meiri en í þeim mánuði sem næst kemur, sem var júní. Heildarviðskipti með skuldabréf í september námu 487 milljörðum.





