Markaðsvakt á bréfum Icelandair

Markaðsvakt á bréfum Icelandair Icelandair Group hf. hefur gert samning við Saga Fjárfestingarbanka hf. um viðskiptavakt en samkvæmt samningnum mun Saga

Markaðsvakt á bréfum Icelandair

Icelandair Group hf. hefur gert samning við Saga Fjárfestingarbanka hf. um viðskiptavakt en samkvæmt samningnum mun Saga sjá um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í Kauphöllinni.

Saga Fjárfestingarbanki mun setja fram kaup- og sölutilboð alla viðskiptadaga í hlutafé ICEAIR í viðskiptakerfi NASDAQ OMX á Íslandi. Upphæð hvers tilboðs skal að lágmarki vera 1.000.000 hlutir á gengi sem Saga ákveður í hvert skipti. Munur á verði kaup- og sölutilboða skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,5%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Saga er skuldbundinn til að eiga viðskipti dag hvern er kr. 15.000.000,- að nafnverði.

Samningnum er ætlað að auka viðskipti með hlutabréf Icelandair Group hf. í Kauphöllinni í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gegnsæjum hætti.



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf