miðvikudagur 08.desember 2010
Magma Energy Sweden hefur reitt af hendi síðustu greiðslu fyrir HS Orku til Geysis Green Energy, upp rúma þrjá milljarða íslenskra króna. Með þessari greiðslu hefur Magma eignast 98,53% í HS Orku. Saga Fjárfestingarbanki hafði milligöngu um fjármögnunina en Magma tók skammtímalán fyrir greiðslunni og er lánið tryggt með skuldabréfi útgefnu af móðurfélagi Magma, Magma Energy Corp.





