föstudagur 19.ágúst 2011
Akureyri Backpackers mun opna gistiheimili í gamla Hótel Akureyri, Hafnarstræti 98, næsta vor. Hafnarstræti 98 er í eigu Saga Fjárfestingarbanka og KEA
sem hafa gert samning við Akureyri Backpackers um endurbyggingu hússins og leigu í kjölfarið. Áætlað er að endurbygging hússins kosti um 160
milljónir króna og munu framkvæmdir hefjast á næstu vikum. Gistihúsið mun rúma 102 gesti og veita fjölþætta þjónustu
fyrir ferðalanga. Hjartað í húsinu mun slá á jarðhæð þar sem rekin verður upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, auk
þess sem þar verður kaffihús þar sem gestir og gangandi geta sest niður og fylgst með fjölbreyttu mannlífi Akureyrarbæjar. Húsið var
byggt árið 1923 og á sér sögu sem gististaður fyrir ferðamenn því þar var lengi starfrækt hótel sem bar nafnið Hótel
Akureyri. Engin starfsemi hefur verið í húsinu í nokkur ár en ytra byrði hússins var friðað árið 2007.





