Fjármögnun Vaðlaheiðarganga tryggð

Fjármögnun Vaðlaheiðarganga tryggð Samkomulag um fjármögnun Vaðlaheiðarganga var undirritað á Akureyri í dag, 17. ágúst. Samkomulagið er

Fjármögnun Vaðlaheiðarganga tryggð

Samkomulag um fjármögnun Vaðlaheiðarganga var undirritað á Akureyri í dag, 17. ágúst. Samkomulagið er milli fjármálaráðuneytisins og Vaðlaheiðarganga hf. sem er í eigu Vegagerðarinnar og Greiðrar leiðar ehf.  Samkomulagið tryggir félaginu fjármögnun á framkvæmdatímanum og þangað til göngin verða komin í rekstur og innheimta veggjalda hafin. Útboðsgögn vegna byggingar Vaðlaheiðarganga verða afhent föstudaginn 19. ágúst og reiknað er með að tilboð verði opnuð 4. október nk.

Saga Fjárfestingarbanki var ráðgjafi Vaðlaheiðarganga hf. við fjármögnunina.



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf