Fimm sparisjóðir hafa nú lokið við að semja við Seðlabanka Íslands um endurskipulagningu í samræmi við neyðarlögin sem samþykkt voru eftir bankahrunið 2008. Fyrirtækjaráðgjöf Saga Fjárfestingarbanka var ráðgjafi tveggja sparisjóða í þessum samningum, Sparisjóðs Norðfjarðar og Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis.
Fimm sparisjóðir uppfylltu ekki skilyrði um lágmark eigin fjár í kjölfar bankahrunsins en Seðlabanki Íslands var þeirra helsti kröfuhafi . Þetta voru auk Sparisjóðs Norðfjarðar og Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis, Sparisjóður Bolungarvíkur, Sparisjóður Svarfdæla og Sparisjóður Vestmannaeyja. Þessi sparisjóðir hafa nú allir samið við Seðlabankann um uppgjör skuldanna . Samkvæmt tilkynningu frá Seðlabankanum nema niðurfellingar krafna á alla þessa sparisjóði, alls 4.564 m.kr. Til fullnustu krafna fengust hins vegar 3.982 m.kr., þar af 1.735 m.kr. í stofnfjárbréfum, 450 m.kr. í víkjandi lánum, 1.184 m.kr í samningsbundnum lánum og 613 m.kr. í reiðufé.
Sjá tilkynningu frá Seðlabanka Íslands: http://sedlabanki.is/?PageID=13&NewsID=2693





