Halldór Jóhannsson, stjórnarformaður, og Bjarni H. Helgason, varamaður, hafa sagt sig úr stjórn Saga Fjárfestingarbanka í samræmi við nýtt ákvæði 4. mgr. 52. gr. laga um fjármálafyrirtæki sem tók gildi hinn 1. apríl sl. Lagaákvæðið kemur í veg fyrir að starfsmenn aðila sem er í nánum tengslum við annan eftirlitsaðila geti tekið sæti í stjórn bankans. Halldór og Bjarni eru báðir starfsmenn KEA sem á virkan eignarhlut í Sparisjóði Höfðhverfinga. Eggert Árni Gíslason, varamaður í stjórn bankans, tekur sæti í stjórn bankans í stað Halldórs og Gunnar Þ. Gíslason varaformaður tekur við sem formaður stjórnar bankans. Stjórn og starfsmenn þakka fráfarandi stjórnarmönnum, sér í lagi fráfarandi stjórnarformanni, fyrir störf þeirra í þágu bankans frá stofnun hans.





