fimmtudagur 13.janúar 2011
Unndór Jónsson, sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf Saga Fjárfestingarbanka, hélt í dag erindi hjá Félagi atvinnurekenda um Beinu brautina svokölluðu. Unndór er tengiliður Saga við fyrirtæki sem vilja nýta sér Beinu brautina til að flýta skuldaúrlausn sinni hjá stóru viðskiptabönkunum.
Beina brautin er samkomulag hagsmunaaðila sem felur í sér samræmdar aðgerðir þar sem fjármálastofnanir og opinberir aðilar leggjast á eitt við að flýta skuldaúrlausn lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Fyrirtækjaráðgjöf Saga Fjárfestingarbanka veitir þeim fyrirtækjum sem kjósa að fara þessa leið ráðgjöf við mat á eigna- og rekstrarvirði sínu og aðstoð í viðræðum við lánardrottna. Á fundinum hjá Félagi atvinuurekenda var meðal annars rætt um mikilvægi þess að fyrirtæki undirbúi sig vel undir það ferli sem Beina brautin er og að hagsmunum þeirra gagnvart bönkum verði sinnt af festu.




