Arctic Trucks semur við norska og sænska herinn

Arctic Trucks semur við norska og sænska herinn Arctic Trucks í Noregi skrifaði nýverið undir samning við norska og sænska herinn um smíði á

Arctic Trucks semur við norska og sænska herinn

Arctic Trucks í Noregi skrifaði nýverið undir samning við norska og sænska herinn um smíði á fjórhjóladrifsbílum. Fyrirtækjaráðgjöf Saga Fjárfestingarbanka hefur verið ráðgjafi Arctic Trucks varðandi fjármögnun félagsins.

Samningur Arctic Trucks er til fjögurra ára með möguleika á framlengingu til allt að tíu ára og er gerður í kjölfar alþjóðlegs útboðs sem þjóðirnar stóðu sameiginlega að. Finnski og danski herinn hafa einnig möguleika á að kaupa bíla samkvæmt þessum samningi.

Samningurinn felur í sér heildarlausn, þar sem Arctic Trucks annast meðal annars þjálfun ökumanna, viðhalds- og varahlutaþjónustu, auk framleiðslu bílanna.Lausnir Arctic Trucks fela í sér notkun á tveimur útfærslum af Toyota bifreiðum, annars vegar Land Cruiser 200 og hins vegar Hilux. Breytingarnar hafa verið þróaðar af Arctic Trucks og miðast við að auka hæfni þeirra við akstur utan vega og að auka burðargetu.

Í fyrstu mun fyrirtækið afgreiða 53 brynvörð og óbrynvörð ökutæki, en samningurinn hljóðar upp á um 130 milljónir norskra króna, eða rúma tvo milljarða íslenskra króna. Fyrstu bílarnir verða afhentir haustið 2011.

„Við erum afar stolt af því að fá þetta verkefni,“ segir Örn Thomsen framkvæmdastjóri Arctic Trucks í Noregi.  „Samkeppnin á þessum markaði er afar hörð og undirritun þessa samnings er því stór áfangi í starfsemi Arctic Trucks.  Við byggjum á yfir 20 ára reynslu af breytingum á fjórhjóladrifsbílum til notkunar við erfiðustu hugsanlegu aðstæður. Við höfum breytt bílum fyrir friðargæslu frá árinu 2003 og reynslan sýnir að viðhaldskostnaður er lægri og líftími bílanna lengri en áður hefur þekkst.“



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf