Alterra Power selur hlut í HS Orku til lífeyrissjóða

Alterra Power selur hlut í HS Orku til lífeyrissjóða Alterra Power, áður Magma Energy, hefur selt fjórtán lífeyrissjóðum hlut í HS Orku. Samkvæmt

Alterra Power selur hlut í HS Orku til lífeyrissjóða

Alterra Power, áður Magma Energy, hefur selt fjórtán lífeyrissjóðum hlut í HS Orku. Samkvæmt samkomulaginu kaupa lífeyrissjóðirnir 25 prósent hlutafjár í HS Orku á genginu 4,63 krónur á hlut. Kaupverðið nemur því tæpum 8,1 milljarði króna og er miðað við að greiðslan fari fram 1. júní nk. Lífeyrissjóðirnir fá jafnframt kauprétt á nýjum hlutum í HS Orku á genginu 5,35 krónur á hlut en verði kauprétturinn nýttur að fullu verður eignarhlutur sjóðanna í HS Orku 33,4 prósent. Samkomulagið felur einnig í sér rétt sjóðanna til að skrá sig fyrir allt að helmingi heildarhlutafjár HS Orku með kaupum á nýjum hlutum sem HS Orka kann að gefa út í framtíðinni.

Lífeyrissjóðirnir hafa stofnað sérstakt félag um eignarhlutinn sem hefur fengið nafnið Jarðvarmi. Jarðvarmi mun tilnefna tvo af fimm stjórnarmönnum HS Orku. Rík minnihlutavernd, virk þátttaka í stjórn félagsins og formleg aðkoma að öllum meiriháttar ákvörðunum á vegum félagsins eru meðal skilmála viðskiptanna og helst það fyrirkomulag ótímabundið, nemi eignarhlutur Jarðvarma í HS Orku meira en 22,5 prósent heildarhlutfjár.

Fyrirtækjaráðgjöf Saga Fjárfestingarbanka hafði umsjón með söluferlinu.



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf