Afsal heimildar til að leita nauðasamninga

Afsal heimildar til að leita nauðasamninga Stjórn Saga Fjárfestingarbanka hefur í dag afsalað sér heimild til þess að leita nauðasamnings við

Afsal heimildar til að leita nauðasamninga

Stjórn Saga Fjárfestingarbanka hefur í dag afsalað sér heimild til þess að leita nauðasamnings við lánardrottna.

Eftir afturköllun starfsleyfis bankans eru ekki forsendur til þess að ljúka nauðasamningi. Standi ákvörðun Fjármálaeftirlitsins óhögguð er ljóst að félagið mun þurfa að fara í slitameðferð í samræmi við ákvæði laga um fjármálafyrirtæki og mun því ekki geta uppfyllt fyrirliggjandi frumvarp að nauðasamningi. Þá mun ógildingarmál taka nokkra mánuði í meðförum dómstóla og ekki forsendur fyrir að ljúka nauðasamningi meðan slíkt mál er rekið. Vegna afsals heimildarinnar mun Saga greiða skuldbindingar sínar þegar þær falla í gjalddaga.



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf