Aðalfundur Hildu

Aðalfundur Hildu Aðalfundur Hildu hf. verður haldinn miðvikudaginn 30. júní  2010, kl. 16:00, að Hafnarstræti 53, Akureyri. Hluthöfum gefst kostur á að

Aðalfundur Hildu

Aðalfundur Hildu hf. verður haldinn miðvikudaginn 30. júní  2010, kl. 16:00, að Hafnarstræti 53, Akureyri. Hluthöfum gefst kostur á að taka þátt í fundinum að Skógarhlíð 22 í Reykjavík, þar sem fundinum verður sjónvarpað beint.

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi Hildu á árinu 2009
  2. Endurskoðaður ársreikningur Hildu fyrir árið 2009 lagður fram til staðfestingar
  3. Ákvörðun um meðferð taps á árinu 2009
  4. Tillögur um breytingar á samþykktum Hildu
  5. Kosning stjórnar
  6. Kosning endurskoðunarfélags
  7. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og endurskoðunarfélags
  8. Önnur mál


Hluthafar sem óska eftir að fá mál sett á dagskrá, vilja leggja fram tillögur eða spurningar og þeir sem gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins, skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en fimm virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar þ.e. í síðasta lagi miðvikudaginn 23. júní 2010. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal veita eftirfarandi upplýsingar:

  1. nafn frambjóðanda
  2. kennitala
  3. heimilisfang
  4. menntun
  5. aðalstarf
  6. önnur stjórnar- og trúnaðarstörf, þ.á.m. stjórnarseta í öðrum félögum
  7. starfsferilságrip
  8. beinir og óbeinir eignarhlutir í félaginu
  9. kaup- eða söluréttarsamningar við félagið
  10. hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu

 
Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund, s.s. ársreikningur Hildu og fram komnar tillögur aðalfundar, liggja frammi á skrifstofum félagsins að Hafnarstræti 53, Akureyri og Skógarhlíð 22, Reykjavík viku fyrir fundardag. Upplýsingar um framboð til stjórnar liggja frammi á sama stað tveimur dögum fyrir fundardag.

Hér fyrir neðan má nálgast tillögur stjórnar Hildu fyrir aðalfundinn. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við upphaf aðalfundarins eða frá kl. 15:00. Vinsamlegast athugið að gera þarf viðhlítandi grein fyrir umboði og/eða prókúru umboðsmanns eða forsvarsmanns hluthafa, mæti hluthafi ekki í eigin nafni. Umboð, bæði fyrir einstaklinga og félög, er að finna hér fyrir neðan.

Stjórn Hildu hf.

Tillögur stjórnar Hildu

Umboð fyrir einstakling
Umboð fyrir félag

 



moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf