Aðalfundur 15. apríl

Aðalfundur 15. apríl Hluthöfum tilkynnist hér með að stefnt er að því að halda aðalfund Saga Eignarhaldsfélags hf. föstudaginn 15. apríl 2011. Nánari

Aðalfundur 15. apríl

Hluthöfum tilkynnist hér með að stefnt er að því að halda aðalfund Saga Eignarhaldsfélags hf. föstudaginn 15. apríl 2011. Nánari upplýsingar um tímasetningu og staðsetningu verða birtar hér á heimasíðu Saga Fjárfestingarbanka þegar nær dregur.

Hluthafar sem óska eftir að fá mál sett á dagskrá, vilja leggja fram tillögur eða spurningar og þeir sem gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins, skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en fimm virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar þ.e. í síðasta lagi föstudaginn  8. apríl. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal veita eftirfarandi upplýsingar:

  1. nafn frambjóðanda
  2. kennitala
  3. heimilisfang
  4. menntun
  5. aðalstarf
  6. önnur stjórnar- og trúnaðarstörf, þ.á.m. stjórnarseta í öðrum félögum
  7. starfsferilságrip
  8. beinir og óbeinir eignarhlutir í félaginu
  9. kaup- eða söluréttarsamningar við félagið
  10. hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu


moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf