Undirnefndir stjórnar

Endurskoðunarnefnd Endurskoðunarnefnd Saga Capital er kosin af stjórn Saga og telst til undirnefnda hennar. Hún starfar samkvæmt lögum um ársreikninga nr.

Undirnefndir stjórnar

Endurskoðunarnefnd

Endurskoðunarnefnd Saga Capital er kosin af stjórn Saga og telst til undirnefnda hennar. Hún starfar samkvæmt lögum um ársreikninga nr. 3/2006 og skal skila skýrslum um störf sín til stjórnar að minnsta kosti einu sinni á ári.

Endurskoðunarnefndin er eftirlitsnefnd og gegnir því hlutverki að tryggja öryggi og gagnsæi ársreikninga og annarra fjárhagsupplýsinga Saga Capital. Nefndin skal staðreyna að þær upplýsingar sem stjórnin fær um rekstur, stöðu og framtíðarhorfur Saga séu áreiðanlegar og gefi sem gleggsta mynd af stöðu félagsins á hverjum tíma. Þannig geti fjárfestar og aðrir hagsmunaaðilar reitt sig á gæði fjármálaupplýsinga um féalgið og störf endurskoðenda hans.

Endurskoðunarnefnd skal meðal annars hafa eftirfarandi hlutverk:

  1. Eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila.
  2. Eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits einingarinnar, innri endurskoðun og áhættustýringu.
  3. Eftirlit með endurskoðun ársreiknings félagsins - og samstæðureiknings ef við á.
  4. Mat á óhæði endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis og eftirlit með öðrum störfum endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis.
  5. Setja fram tillögu til stjórnar um val á endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki.

 Eftirtaldir aðilar sitja í endurskoðunarnefnd Saga Capital:

  • Gunnar Þór Gíslason, formaður stjórnar
  • Ágúst Egilsson
  • Arnar Már Jóhannesson
moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf