Stjórn

Eftirfarandi sitja í stjórn Saga Capital: Stjórn Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Gunnar Þór Gíslason (1965) er framkvæmdastjóri Sundagarða hf.

Stjórn

Eftirfarandi sitja í stjórn Saga Capital:

Stjórn

Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður

Gunnar Þór Gíslason (1965) er framkvæmdastjóri Sundagarða hf. Gunnar Þór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur gengt ýmsum stjórnunarstörfum sem tengjast bæði fjármálamarkaðinum og matariðnaðinum og var stjórnarformaður Stoke City Football Club á árunum 1999-2006.

Gunnar Þór var kjörinn í stjórn Saga Capital árið 2010, en hann situr einnig í eftirtöldum félögum: Saga Eignarhaldsfélagi hf., Sundagörðum hf., Langasjó ehf., Síld og Fiski ehf., Matfugli ehf., Brimgörðum ehf., Mata hf. og Salathúsinu ehf. Gunnar Þór og tengdir aðilar eiga 11,52% eignarhlut í Saga Eignarhaldsfélagi hf. og Hildu hf. Þar af á Gunnar þór 1,05% og Sundagarðar hf., þar sem Gunnar Þór er framkvæmdastjóri og hluthafi, eiga 10,47%

Ágúst Sverrir Egilsson

Dr. Ágúst Sverrir Egilsson (1966) er starfandi stjórnarformaður JCell FSS ehf. Ágúst er með doktorspróf í stærðfræði  frá Kalíforníuháskóla, Berkeley, og B.Sc. í stærðfræði frá Háskóla Íslands. Hann starfar nú við uppbyggingu QuantCell Research hugbúnaðarins en starfaði í Landsbankanum við fjármálastærðfræði 2007-8 og áhættustýringu 2008-9. Ágúst hefur starfað við kennslu og rannsóknir við Háskóla Íslands 2006-7, Kalíforníuháskóla í Berkeley 2000-2005 og við Wisconsin háskóla í Madison 1997-2000. Ágúst er höfundur fjölda hugbúnaðarkerfa og er aðalhöfundur 9 samþykktra einkaleyfa í Bandaríkjunum ásamt því að vera höfundur viðurkenndra fræðigreina í stærðfræði og tölvunarfræði.

Ágúst var kjörinn í stjórn Saga Capital árið 2011 en hann situr einnig í stjórn JCell FSS ehf. og Cell Objects ehf. Ágúst á ekki eignarhlut í Saga Capital eða Saga Eignarhaldsfélagi.

Áslaug Gunnlaugsdóttir

Áslaug Gunnlaugsdóttir (1973) er sjálfstætt starfandi lögmaður hjá LOCAL lögmönnum. Áslaug var lögmaður hjá BBA//Legal á árunum 2007-2010, lögfræðingur á skatta- og lögfræðisviði Deloitte hf. 2006-2007, deildarstjóri hjá Skattstjóranum í Reykjavík frá 2002-2006 og lögfræðingur hjá Skattstjóranum í Reykjavík á árunum 2000-2002.

Áslaug var kjörin í stjórn Saga Capital árið 2011 en hún situr einnig í stjórn LOCAL lögmanna ehf. Áslaug á ekki eignarhlut í Saga Capital eða Saga Eignarhaldsfélagi.

Brynhildur Kristín Ólafsdóttir

Brynhildur Kristín Ólafsdóttir (1967) var forstöðumaður samskiptasviðs Saga Capital á árunum 2007-2011, fréttamaður og yfirmaður erlendra frétta á Stöð 2 frá 1997-2007 og blaða- og fréttamaður hjá DV, UPI og RÚV á árunum 1987-1997. Hún var jafnframt forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands á árunum 2005-2006, stundakennari í alþjóðastjórnmálum við Háskóla Íslands frá 2002-2005, og sendifulltrúi Alþjóða Rauða krossins í Honduras, Pakistan og Afganistan árin 1999 og 2001.

Brynhildur var kjörin í stjórn Saga Capital árið 2011 og er einnig meðstjórnandi í Saga Eignarhaldsfélagi. Brynhildur á ekki hlut í Saga Capital eða Saga Eignarhaldsfélagi.

Eggert Árni Gíslason

Eggert Árni Gíslason (1961) er framkvæmdastjóri Mötu hf. Eggert er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur verðbréfamiðlari. Hann hefur margra ára reynslu af fyrirtækjarekstri, fyrirtækjakaupum og ýmsum fjárfestingum.

Eggert var kjörinn í stjórn Saga Capital árið 2009 og sem varamaður árið 2010 en tók sæti aðalmanns á ný þann 8. apríl 2011. Eggert er einnig meðstjórnandi í Saga Eignarhaldsfélagi hf., Brimgörðum ehf., Langasjó ehf., Matfugli ehf. og Mötu hf. ásamt því að vera stjórnarformaður í Síld og fisk ehf. og Sundagörðum hf.

Eggert á engin hlutabréf í Saga Capital eða Saga Eignarhaldsfélagi en er hluthafi og gegnir stjórnarformennsku í Sundagörðum hf. sem á 10,47% hlut í Saga Eignarhaldsfélagi.


Varastjórn

Geir Gíslason
Gunnar Leó Gunnarsson
Halldór Páll Gíslason
Kristinn Helgi Guðjónsson
Stefán Héðinn Gunnlaugsson

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf