MiFID

Aukin vernd fyrir fjárfesta Ný heildarlöggjöf um verðbréfaviðskipti kennd við MiFID (The Markets in Financial Instruments Directive) tók gildi 1. nóvember

MiFID

Aukin vernd fyrir fjárfesta

Ný heildarlöggjöf um verðbréfaviðskipti kennd við MiFID (The Markets in Financial Instruments Directive) tók gildi 1. nóvember 2007 og er markmið hennar að samræma regluverk um fjárfestingarþjónustu á Evrópska efnahagssvæðinu og auka enn á neytendavernd fjárfesta. Áhersla er lögð á aukið eftirlit, faglega og hlutlausa framkvæmd viðskiptafyrirmæla og fjárfestingarráðgjafar sem og upplýsingagjöf. Hér má nálgast upplýsingabækling um MiFID. Eins og áður, þurfa allir þeir sem vilja eiga viðskipti með fjármálagerninga að samþykkja skilmála viðkomandi fyrirtækis og fylla út nokkur skjöl áður en af viðskiptum getur orðið. Við bætist svo að fjármálafyrirtækin þurfa nú að flokka viðskiptavini sína að teknu tilliti til fjárhags þeirra, þekkingar og reynslu. Neytendavernd fjárfesta er mismikil eftir því hvaða flokkun þeir fá.

Markmið laganna er einkum að tryggja að fjármálafyrirtæki þekki viðskiptavini sína og flokki hvern og einn þeirra á viðeigandi hátt. Þannig verði best tryggt að fjármálafyrirtækið veiti viðskiptavini sínum nauðsynlegar upplýsingar um fjárfestingar, í samræmi við flokkun viðskiptavina, þannig að þeir geti tekið upplýstar ákvarðanir um fjárfestingar sínar.

Fjárfestar eru flokkaðir í þrjá meginflokka, :

  • Almennir fjárfestar
  • Fagfjárfestar
  • Viðurkenndir gagnaðilar

Sjá nánar um flokkun viðskiptavina á bls. 12 í Viðauka 1 við Almenna skilmála Saga Capital. Óski viðskiptavinur eftir frekari upplýsingum um vernd og flokkun viðskiptavina er honum bent á að hafa samband við starfsmenn fyrirtækisins með tölvupósti á netfangið vidskipti@sagacapital.is.

Mat á viðeigandi fjármálagerningum

Ef fjárfestir er ekki viðurkenndur gagnaðili eða fagfjárfestir, getur verið nauðsynlegt að meta þekkingu hans á mismunandi tegundum fjármálagerninga. Þær upplýsingar gera félaginu kleift að vara viðskiptavin við því að fjárfesta í fjármálagerningi sem hann hefur ekki nægjanlega þekkingu á. Sé viðskiptavinur staðráðinn í að fjárfesta í verðbréfum sem félagið telur ekki viðeigandi fyrir hann að fjárfesta í, þrátt fyrir aðvaranir félagsins á þeirri áhættu sem í fjárfestingunni felst, geta viðskiptin haldið áfram, enda fallist félagið á það.

Saga Capital lætur viðskiptavinum sínum í té Yfirlit yfir fjármálagerninga og áhættur, sem viðauka 2 við Almenna skilmála Saga Capital, sem veitir þeim innsýn í hvernig fyrirtækið velur markaði til að koma til móts við óskir viðskiptavina sinna.

Reglur Saga Capital um bestu framkvæmd

Saga Capital hefur sett sér Reglur um bestu framkvæmd viðskiptafyrirmæla. Samkvæmt reglunum skal Saga Capital ávallt kappkosta að ná bestu mögulegri niðurstöðu í samræmi við óskir viðskiptavinarins. „Besta mögulega niðurstaða" þýðir að við val á fjárfestingarleið tekur Saga Capital með í reikninginn vissa þætti, svo sem verð, kostnað og skilvirkni við vinnslu pantana. Með tilkomu MiFID hafa leiðir til þess að ná niðurstöðu verið færðar í strangara lagaumhverfi.

Saga Capital lætur viðskiptavinum sínum í té Reglur Saga um bestu framkvæmd viðskiptafyrirmæla sem viðauka 3 við Almenna skilmála Saga Capital, sem veitir þeim innsýn í hvernig fyrirtækið velur markaði til að koma til móts við óskir viðskiptavina sinna. Óski viðskiptavinur eftir frekari upplýsingum um Reglur Saga Capital um bestu framkvæmd er honum bent á að hafa samband við starfsmenn fyrirtækisins með tölvupósti á netfangið  vidskipti@sagacapital.is.

Stefna um hagsmunaárekstra

Saga Capital hefur sett sér Stefnu um hagsmunaárekstra. Markmið stefnunnar er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra milli félagsins og viðskiptavina annars vegar og milli viðskiptavina innbyrðis hins vegar. Hluti af stefnunni felst í að aðskilja þá starfsmenn félagsins sem vinna með ólíka hagsmuni viðskiptavina sem geta stangast á. Viðskiptavinum eru veittar upplýsingar þegar hætta er á að ekki sé hægt að tryggja að komið verði í veg fyrir hagsmunaárekstra.

Óski viðskiptavinur eftir frekari upplýsingum um Stefnu Saga Capital um hagsmunaárekstra er honum bent á að hafa samband við starfsmenn félagsins með tölvupósti á netfangið vidskipti@sagacapital.is.
 

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf