Kaup og sala fyrirtækja

Óhætt er að segja að einhverjir mestu eignatilflutningar í sögu Íslands eigi sér stað nú í kjölfar efnahagshrunsins. Það skiptir miklu máli í þessu umróti

Kaup og sala fyrirtækja

Óhætt er að segja að einhverjir mestu eignatilflutningar í sögu Íslands eigi sér stað nú í kjölfar efnahagshrunsins. Það skiptir miklu máli í þessu umróti að fyrirtæki skipti um hendur á heiðarlegan, opin og gagnsæjan hátt. Saga Capital er óháður aðili með hreinan skjöld og því kjörin samstarfs- og milligönguaðili í þessum viðskiptum þar sem traust skiptir höfuðmáli.

Með fagmennskuna að leiðarljósi hefur Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital náð afar góðum árangri við bæði kaup og sölu fyrirtækja. Starfsmenn Fyrirtækjaráðgjafar leggja áherslu á heildarlausnir til að hámarka verðmæti fyrir alla hlutaðeigandi, núverandi eigendur, fyrirtækin og kröfuhafa. Í umróti hrunsins liggja líka fjöldamörg tækifæri fyrir atorkumikla fjárfesta því kauptækifæri hafa skapast í mörgum stöndugum og áhugaverðum fyrirtækjum.

  • Ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja
  • Verðmat
  • Umsjón með samningaviðræðum og samningsgerð
  • Umsjón með áreiðanleikakönnunum
  • Milliganga um fjármögnun við breytingar á eignarhaldi
  • Vöktun á kaup- og sölutækifærum
Starfsmenn Fyrirtækjaráðgjafar veita allar frekari upplýsingar í síma 545 2600 eða í gegnum netfangið radgjof@sagacapital.is.
moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf