Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital hefur frá efnahagshruninu haustið 2008 aðstoðað fjöldamörg fyrirtæki og stofnanir við endurskipulagningu þeirra. Aðkoma sérfræðinga Saga Capital að endurskipulagningarferli fyrirtækja getur skipt sköpum, þar sem óháðir sérfræðingar eru oftast betur í stakk búnir til að koma fram með tillögur sem bæði eigendur og kröfuhafar geta sætt sig við. Í því óeðlilega ástandi sem skapast hefur í íslensku fjármálalífi getur þurft hlutlausan og óháðan aðila til lægja öldurnar.
Í vinnu okkar leggjum við áherslu á að finna lausnir sem taka mið af langtímahagsmunum viðskiptavinarins, þar með talið viðskiptasambandi hans við viðskiptabanka sinn. Sérfræðingar Fyrirtækjaráðgjafar sjá meðal annars að sér eftirfarandi þjónustuþætti fyrir fyrirtæki í endurskipulagningu:
- Greining á rekstri félags í endurskipulagningu
- Mat á greiðsluhæfi
- Samskipti við kröfuhafa og banka
- Tillögugerð og kynning
- Umsjón með samningaviðræðum
Starfsmenn Fyrirtækjaráðgjafar veita allar frekari upplýsingar í síma 545 2600 eða í gegnum netfangið radgjof@sagacapital.is.





