Stýring óhefðbundinna eignasafna
Saga Capital býður fyrirtækjum og fagfjárfestum upp á samningsbundna umsýslu og úrvinnslu óhefðbundinna eða
ómarkaðshæfra eigna (distressed assets) svo sem skuldaskilaeigna, krafna, eignahluta, fasteigna eða annarra eigna sem krefjast sérhæfðrar
meðferðar.
Hér er einkum horft til eignarhaldsfélaga, lífeyrissjóða, tryggingarfélaga, fjármálastofnanna og annarra aðila sem eignast hafa slíkar eignir og vilja útvista utanumhaldi og úrvinnslu.
Hægt er að hafa samband við starfsmenn Eignaumsýslu í síma 545 2600 eða í gegnum netfangið eignaumsysla@sagacapital.is.





